Heimur Konna

Konráður kyntákn almúgans

19.11.2007 17:49:13 / konnio

Fótbolti í kvöld

Ætla að kíkja í fótbolta í kvöld, hvaða líkamspart ætli mér takist að skemma í kvöld??

Læt ykkur svo vita á morgun hvort ég sé í heilu lagi. :)

Konni kempa kveður.


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 11:54:28 / konnio

VARÚÐ!!! Ökuníðingur á Sauðárkrók.

Skelfing hefur gripið um sig hjá fólki á Sauðárkróki!

Systir mín sem er komin langt á fertugsaldur keyrir um götur Sauðárkróks á ofsahraða og virðir ekki umferðarlögin. Sést og heyrst hefur til hennar keyrandi um götur bæjarins með tónlist í botni, reykspólandi fyrir framan elliheimilið og rífandi kjaft við laganaverði. Hef ég heyrt að fólk þarna fyrir norðan sé hætt að þora út úr húsum sínum vegna hræðslu við að verða keyrð niður.

Ekki veit ég hvað henni gengur til eða akkuru hún lætur svona, ég er samt með hugmyndir akkuru þetta er að gerast.

* Núna þegar hún er orðin ein því kallinn hennar er í skóla í bænum þá vantar hana smá spennu í líf sitt.

* Hún er orðin elliær.

* Sjónin á hinu auganu hennar er orðin slæm og hún er að verða blind. (Hún er blind á öðru auga)

* Hún kann ekki almennilega á bílinn.

* Hún er orðin 17 ára aftur.

* Hún er að reyna að ganga í augun á einhverjum þarna fyrir norðan.

Set þessa mynd hérna af henni fyrir ykkur sem eruð á ferð um norðurlandið og vitið ekki hvernig systir mín lítur út. (Hún er þessi vinstra megin.) Ef þið sjáið hana nálgast ykkur á einhversskonar farartæki, vil ég gefa þessu fólki eitt gott ráð: KOMIÐ YKKUR Í BURTU!!!

Konni fv.atvinnubílstjóri sem er ekki á leiðinni norður í bráð kveður.


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 17:25:25 / konnio

HJÁLP!!!!

Auglýsi hér með eftir buxunum mínum sem eru týndar einhversstaðar út í heimi á leiðinni frá Ástralíu. Ef einhver hefur séð þær eða er með þær vinsamlegast hafið samband.

Svona líta þær út.

Svona líta týndu buxurnar mínar út.

 

Vegleg fundarlaun í boði:

* Sundkort sem hefur einungis verið notað 4 sinnum

* Fær að senda eina sendingu til lands að eigin vali með TNT.

* Ég tek einn dans með þeim sem finnur buxurnar. (Bara einn! Veit að eftir þennan eina dans mun einstaklingurinn vilja fleiri, bara töff lökk. Hann verður bara einn!)

* Fær afnot af símanum mínum. (Eitt símtal.)

Núna er bara að spýta í lófana fólk og finna (skila) buxunum mínum því svona verðlaun bjóðast ekki á hverjum degi.

 

Konni buxnalausi kveður.


» 8 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 11:51:59 / konnio

Hver man ekki eftir þessu??

Smjattpattar burt flúðu flótt,
Í frelsisleit um miðja nótt.
Svo fundu þeir sér fögur hús,
Í friðsælum garði.

Smjattpattar sér byggðu bú.
Þeir búa þar víst ennþá nú.
Þeir fundu þarna allt til alls,
Áður en varði.

Þarna Pála Púrra er.
Petru maður líka sér.
Manga kólf og Lúlla lauk
Þar líka að ber

Enginn Tomma tómat fékk,
Til að sitja á skólabekk.
Hann sífellt úti í
sólskininu hékk.

Sigga litla selja er
Soldið hrekkjótt þykir mér
En ekkert líkt og
Bogi og Þremill þyrniber

Mangi maískólfur er
Með þeim lalla’ að skemmta sér
Kveðjur góðar, krakkar mínir
Koma nú hér.

 Konni Kálhaus kveður.


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 17:43:41 / konnio

Er Konni búinn til úr brauði eða er hann orðinn of gamall til að hreyfa sig?

Er Konni búinn til úr blautu brauði? Tja maður spyr sig?

Það var fyrir mánuði síðan í mánudagsfótbolta með vinnunni í miklum veðmálsleik um tvær kippur sem er kannski ekki neitt til að segja frá nema fyrir þær sakir að ég fæ spark aftan í vinstri kálfann, allt í lagi með það hélt ég og spilaði fótbolta í 1 1/2 tíma í viðbót :) Þegar ég vakna deginum eftir er kálfinn á mér allur blár og gulur.

Fór ég norður helgina eftir þetta atvik og við það eitt að komast í hreint loftslag þá bólgnaði löppin á mér öll upp og varð þreföld. Eftir mikið þras við móðir mína lét ég til leiðast og fór til læknis. Hann potaði í tærnar á mér og sagði að það hefði sennilega blætt inná vöðvann og það versta væri búið og gaf mér 600 mg Íbúfen sem ég átti að taka þrisvar á dag.

Þremur vikum seinna var ég orðinn "góður" og mætti spenntur í mánudagsboltann, eftir boltan voru smá eymsli í kálfanum en ekkert til að hafa áhyggjur af :) Fór þess vegna í bolta í gærkvöldi sem endaði með spítalaferð í morgun :D

Í boltanum í gærkvöldi var ég að hlaupa lipurlega upp kantinn með boltann þegar ég er tæklaður, nema ég með snerpu minni (var eins og hoppandi fjallasteingeit á sólríkum degi) hoppa upp úr þessari tæklingu og lendi venjulega að ég held, en finn samt fyrir einhverjum eymslum í hægri ökklanum. Fór heim haltrandi, vaknaði svo í morgun með tvöfaldan ökkla og gat ekki stigið í löppina :) Kom í ljós í morgun að ég er bara tognaður í ökklanum.

Þá kemur stóra spurningin er ég orðinn of gamall fyrir hreyfingu (systir mín vill meina það;) :) eða er ég bara einhver deigstrákur?

Ég er eins og neðri myndin

 

 Löppin góða 2/11

Þegar ég var ungur og hraustur.

Konni brauðlappir kveður.


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 09:28:37 / konnio

Póstmiðstöðvarcup 2007

Núna um helgina var haldið hið árlega fótboltamót á milli deilda hérna í vinnunni, unnum við strákarnir í TNT þetta mót í ár annað árið í röð mörgum til mikillar gremju :)

Sigurliðið :)

 

Svo var dansað fram á nótt í tilefni dagsins :P

 

Konni kveður dansandi glaður :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 16:29:31 / konnio

Konni.eitthvað

Eyddum síðustu tímunum hérna í vinnunni í dag að leita að síðum á netinum sem innihélt nöfnin okkar.

Sú síða sem vakti mesta lukku var:

www.konni.de

Tók ákvörðun núna áðan eftir að ég sá þessa síðu að fara aldrei aftur til Þýskalands!!!

Ég tók ekki gleði mína aftur fyrr en ég flétti upp:

www.konni.com

oooohhhw :)

Verð víst að minnast á hana Ósk. Hún er alveg ágæt.

Konni Transgirl kveður!


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 11:05:10 / konnio

Mjög sniðugt!

Þar sem ég hef svo mikið að gera hérna í vinnunni þessa dagana þá hef ég verið að labba á milli fólks hérna og biðja þá um að sýna mér eitthvað skemmtilegt á netinu. :)

 Var meðal annars bent á þessa síðu sem er algjör snilld!

 http://musicovery.com/ 

Tékk it out!!!

 Konni kveður að vinna eins og maniac!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 09:05:28 / konnio

Ég er orðinn afi :)


» 13 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 18:21:20 / konnio

Bara svona......

Kvikmyndasumarið í sumar einkennist aðallega af framhaldsmyndum, myndir eins og

  • Pirates of the Caribbean 3
  • Goal 2
  • Shrek 3
  • Spider-Man 3
  • Die Hard 4
  • Rush Hour 3
  • Ocean´s Thirteen
  • Fantastic Four 2
  • Bruce Almighty 2
  • Harry Potter 1000 (hef ekki hugmynd hvað það eru komnar margar myndir)

Þetta er allaveg einhver partur af framhaldsmyndum sem verða sýndar í sumar og bíður maður spenntastur eftir Pirates og Die Hard.

 

Sumarið byrjar samt á eitthverju besta framhaldi sem maður getur hugsað sér.

 
  • Liverpool vs Milan: Part Deux!!!
 

Vonum bara að þessi endi jafnvel og sá fyrri.

  

Annars bara frekar lítið að frétta, styttist óðum í Ástralíuförina og ég er að segja ykkur það að ég get ekki beðið. EKKI BEÐIÐ!!!!!

Bara 40 dagar. (þegar þetta er skrifað.)

 

Konni kveður ekki í bloggstuði.


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 17:14:42 / konnio

Batman er sjúkur maður!!

Rakst á þetta á netinu, nokkuð fyndið!

 

Það eru nokkrar teikningar þarna sem minna mig á hann vin minn Elmar sem var að flytja á Ísafjörð! (Jæja Elmar nafnið þitt komið í færsluna) :)

Kannski eins og þið sjáið þá hafa þessir Comics gaura ekki pælt oft í því sem þeir voru að skrifa og teikna :)

Konni kveður hlæjandi að sveitamanninum honum Elmari! (Elmar búinn að að segja nafnið þitt þrisvar sinnum!)

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 16:16:24 / konnio

Ungur í anda þrátt fyrir háan aldur :)

Farið var norður um helgina sem var að líða til að fagna afmæli míns og mömmu :) alltaf gott að koma á hótel mömmu þó svo að ferðin hafi ekki alveg gengið eins og vonast var eftir. Fór ég með Sólborgu norður á hennar bíl og þar sem hún kann víst ekki að keyra þurfti ég að gera það. :) Tók ég kisurnar mínar með eins og alltaf þegar ég fer norður, hingað til hefur það alltaf gengið vel. Þegar við áttu korter eftir á Krókinn gaus upp þessi líka nasty skítafýla, hafði þá annar kötturinn tekið sig til og hraunað yfir hinn köttinn og útúr búrinu og á gólfið í bílnum :) komust við nú á leiðarenda þrátt fyrir viðurstyggilega lykt og mikið mjálm. Þegar heim var komið tók við hálftíma prósess að smúla og sápa kettina. :)

Annars fór helgin bara í mikið át,leti og miklar pælingar sem ég segi kannski frá seinna :)

 Átti svo afmæli í gær og fór afmælisdagurinn í það að "vinna" til klukkan 9 um kvöldið og svo var farið í fótbolta svo heim að sofa, jamm æðislegur afmælisdagur :) . Reyndar langt síðan ég hef fengið svona mikið af faðmlögum.kossum og gjöfum á afmælisdeginum mínum. Fékk meira að segja köku senda í vinnuna. Maðurinn sem kom með hana var fljótur að hlaupa út þegar ég spurði hver væri að senda þetta, fattaði síðan um leið frá hverjum þetta var þegar ég opnaði kassann og  sá hvað stóð á kökunni :)

 

                                       Kakan góða

Konni kveður fullur þakklætis fyrir gærdaginn!

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 18:01:23 / konnio

Sofandi sjónvarpsglápari!

Veit ég fátt betra en að skella einni DVD mynd í spilarann seint á kvöldin og sofna síðan yfir myndinni J

Á nokkrar uppáhalds myndir sem gott er að sofna yfir, hef séð byrjunina á þeim örugglega 20 sinnum en endan ekki nema 2-3 sinnum. (Ætla að taka það fram að ég sofna ekki útaf því að mér finnst þetta leiðinlegar myndir heldur það er bara svoooo gott að sofna með þær í gangi.) :)

Hérna eru myndirnar:

  

     

 

 

Þetta eru bara nokkrar af mörgum sofi myndunum mínum J

Svo er náttúrlega alltaf gott að skella Friends og Family Guy í spilarann og sofna útfrá því .J

  

 

 

Konni kveður sofandi eins og múldýr yfir sjónvarpinu.


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 09:36:16 / konnio

Einu sinni voru þrír bræður sem allir hétu Eiríkur nema Helgi hann hét Hannes.

Ætlaði heldur betur að vera duglegur í gærmorgun og vakna eldsnemma því ég þurfti að taka strætó í vinnuna J stillti vekjarann í símanum á 6:30 alveg nógu tímanlega til að ná fyrsta vagni. En þar sem ég er maður sem finnst gott að snooze-a ákvað ég að snooze-a alveg til klukkan sjö, sá þá fram á það að ég hefði alveg tíu mínútur til að klæða mig, bursta tennur og gefa kisunum að borða og koma mér niðurá stoppistöð J. Eftir átta mínútur var ég búinn að öllu heima sem ég ætlaði að gera, greip I-podinn minn og rauk út. Hljóp eins og fætur toguðu niðurá stoppistöð (var næstum búinn að hlaupa gamla konu niður í látunum í mér.) Kom á stoppistöðina klukkan 7:10 ( sem er tíminn sem strætó á að vera þarna.) hugsaði ég þarna “árans ég er örugglega nýbúinn að missa af honum, jæja skítt með það ég tek bara næsta vagn, ég hef minn I-pod til að stytta mér stundir ALLRIGHT” Nei nei klukkan 7:18 kemur ekki vagninn keyrandi! ÁTTA mínútum of seint!! Hvernig er það eiginlega hægt??

Ég fer inn í vagninn og set mínar 280kr í baukinn ekki vitandi það að bílstjórinn á þessari límmósíu fór annað hvort öfugu megin frammúr um morguninn eða þá að hann væri bara snarbilaður!!! Það hefði snjóað smá um nóttina og var hálka úti, komum við keyrandi að smá krappri beygju eeen í staðinn fyrir að hægja á sér gaf þessi maniac allt í botn sem endaði með því að strætóinn var í rassaköstum út um alla götu. Asísk kona sem sat tveimur sætaröðum fyrir framan mig eyddi næstu þremur mínútum í að signa sig greinilega dauðhrædd um líf sitt í þessari bílferð dauðans.

 

Verð vitni af einhverju því mesta rusli sem hefur verið sýnt í sjónvarpi. Lá í sakleysi mínu upp í sofa á miðvikudagskvöldið og var að flakka á milli svöðva þegar ég dett inní raunveruleikaþáttinn hennar Britney Spears. Þarna hugsaði ég hmmm…. kannski er komin þarna einhver önnur snilld eins og þátturinn hennar Jessicu Simpson. Eeeen neinei þvílíkt rusl!! Eyddi þarna hálftíma af lífi mínu sem ég fæ aldrei aftur. L Ekki tók nú neitt betra við þegar þessi blessaði þáttur var búinn því þá byrjaði Entertainment Tonight, alltaf þegar ég skipti á Sirkus og þessi þáttur er í gangi þá er verið að tala um dauða Önnu Nicole Smith!! Hvað er eiginlega hægt að kjamsa lengi á þessum dauða hennar?? Tja maður spyr sig?

 

                                               

 

Jæja nenni ekki að nöldra neitt meira, þarf víst að vinna smá ;)

 

Konni kveður syngjandi glaður í strætó!


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 16:44:02 / konnio

Matur,Bílar og Ástralía!!

Fann þörf hjá mér að blogga í dag, svo þegar ég ætlaði að byrja fann ég ekki neitt til að skrifa um :( fékk samt góða ábendingu um að skrifa um matinn sem ég borðaði í hádeginu. Ekki merkilegur matur sem ég fékk mér, einn diskur Stroganoff (sem var reyndar eins og súpa því ekki var mikið kjöt í því) hrísgrjón, fjórar og hálf kartafla og níu brauð.

                                 

Er annars búinn að selja bílinn minn :) JEY!!! Ætla að keyra á honum út mánuðinn og afhenda nýja eigandanum hann í lok mánaðarins. Eftir það verður það bara 25 milljón króna gul limmósína sem ég mun ferðast með :) Svo er stefnan sett á það að kaupa nýjan bíl í ágúst þegar maður kemur heim frá Ástralíu, já meðan ég man ég er að fara til Ástralíu!! Get ekki beðið eftir að fara!!!

Hef annars verið að skoða bíla á netinu á www.bilasolur.is og vá hvað er sett mikið á notaða bíla. Liggur við að það sé ódýrara að kaupa sér glænýjan bíl í staðinn fyrir notaðan! Hanna systir og Vignir mágur keyptu sér ekki fyrir löngu 2005 árgerð af Suburu Legacy og eftir að ég prufaði smá rúnt á honum með Hönnu öskrandi í sætinu við hliðina á mér þá verð ég að segja að ég er smá hrifinn af þannig bíl. Er að pæla hvort maður eigi að skella sér á eitt þannig eintak?? Kemur í ljós hvað maður gerir í ágúst :)

                                                        

Jæja ætla að fara að koma mér heim og í sund. Verð að fara að massa þetta átak!! Fór í klippingu á föstudaginn og léttist við það um tvö kíló (og þetta er án gríns.)

Konni eini Eþíópíubúinn sem kann að synda kveður!


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Myspace-ið og Minnsirkus
Fucking snilld
Hlátur,grátur,klám,sori og viðbjóður
My FAMILIA