Heimur Konna

Konráður kyntákn almúgans

23.01.2006 21:38:30 / konnio

Manstu eftir....... AAHHH GOOD TIMES!!

Það er alltaf gaman að rifja upp gamla tíma og enda svo með að segja AAHHH GOOD TIMES!!! En ég hef rekið mig á það hjá sumum að þegar ég fer að rifja upp eitthvað sem ég man eftir þegar ég var lítill horfir einstaklingurinn á mig og man ekki eftir neinu og spyr "Gaur hvað ertu eiginlega gamall" eða "Gaur ertu eitthvað vangefinn" þetta særir mig yfirleitt alltaf og reyni ég að bjarga mér með að segja AAHHH GOOD TIMES en það er ekki eins að segja AAHHH GOOD TIMES þegar maður segir það bara einn þetta eru orð sem verður að segjast af mörgum í einu helst í kór!!

Hérna er nokkur atriði sem ég hef verið að tala við fólk um sem ég man eftir en þau  mundu ekki neitt eftir!!!

* Teiknimyndunum um spæjarann Nick Knatterton

* Frönskukennslunni í sjónvarpinu.

* Þegar það var ekkert sjónvarp á fimmtudögum.

* Þegar barnaefnið var á eftir fréttum.

* Teiknimyndunum um Folan minn litla ( Var reyndar fyndin saga í kringum þetta)

* Teiknimyndunum um Thundercats

* Þegar það var töff að vera í gammósíum.

* Þegar ég vann splittkeppnina. ( Finnst nú skrítið að fólk muni ekki eftir því, það gerðist nú bara í fyrra PEOPLE!!)

* Stiklur þáttur sem Ómar Ragnarson var með.

* RC-Cola

* Glætu

* Þegar það kostaði 897.486 kr að fara til útlanda.

* Þegar fimmtíukall og tíkall voru seðlar.

* Þegar ég var 3-4 ára og var að leika mér með systur minni og vinkonum hennar í feluleik úti og ég var hann. Þegar ég var búinn að telja byrjaði ég að leita en fann engan, fór ég þá að kalla " Hanna, Hanna hvar ertu " ekki kom Hanna heldur róninn í hverfinu og hann byrjaði að öskraði á mig " Hvaða helvítis hávaði er þetta í þér krakki " þarna stóð ég 3-4 ára fyrir fram rónann byrjaði að grenja og pissaði svo loks á mig. Hver man ekki eftir þessu?? AAHHH GOOD TIMES!!!

Nú spyr maður sjálfan sig ætli Hanna systir og róninn sem öskraði á mig séu eina og sama manneskjan?? Aldrei sá ég þau bæði á sama stað á sama tíma. Hmmmm.. maður spyr sig!  

En þetta eru bara nokkrir punktar sem ég hef rekið mig á að fólk man ekki eftir þegar maður fer að rifja upp gamla tíma!

Herr Conrad Überweiss kveður segjandi fólki að MUNA!! 


» 12 hafa sagt sína skoðun

16.01.2006 20:48:41 / konnio

Langt síðan

Það er orðið frekar langt síðan að maður ritaði eitthvað hérna! En ég ætla ekki að hafa þetta eitthvað langt í þetta skiptið, vildi bara vekja athygli fólks á því að ég held að ég sé búinn að svara öllum í sambandi með færsluna hérna á undan! Ef ekki endilega kvittið þar og ég skal svara ykkur múahahaha!

Konstantín kveður ekki segjandi mikið!


» 4 hafa sagt sína skoðun


My FAMILIA
Hlátur,grátur,klám,sori og viðbjóður
Fucking snilld
Myspace-ið og Minnsirkus