Þar sem Albert bróðir er orðinn eitthvað æstur í blogg hjá manni
ætli maður verði ekki að skrifa einhvern smá pistil hérna!
Það er nú ekki neitt mikið búið að gerast síðustu daga, bara
þetta vanalega vinna,borða,sofa og djamma.
Tókum þátt í árlegu fótboltamóti flutningsaðila á Íslandi um
helgina en það fór fram í Fífunni í Kópavogi. Lentum við í öðru
sæti í þessu móti í fyrra og var stefnan tekin á eitthvað hærra en
fyrsta sætið þetta árið. (Sky is the limit!!) öööööööööööö. Nenni
ekki að fara alveg í þaula með þetta mót en við lentum í 3ja sæti
núna í ár, töpuðum á móti erkióvininum DHL í undanúrslitum sem
notabene unnu mótið! Um kvöldið var náttúrlega hist heima hjá
hjónunum á Freyjugötunni og drukkið áður en haldið var í bæinn.
Vill ég benda fólki á að verða sér út um Fréttablaðið á
sunnudaginn síðasta. Ef þú getur það ekki þá
http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/20060319/IDROTTIR/60320032/1051 og
lesið sjöttu neðstu spurninguna!!! Komst að því að það er einhver
nafnanauðgari á meðal vors!
Vill enda þetta á því að minna fólk á það að strákurinn á afmæli
bráðum og á von á að fá fullt,fullt af gjöfum!! Það stendur
víst í biblíunni að þeir sem ekki gefa gjafir munu verða sköllótt,
kynlaus og fá skeifugörn áður en þau kafna að lokum á
jógúrtskeið. John 3:16
Konstantín kveður syngjandi afmælissöngva og bíður
spenntur eftir pökkunum!!