Ætlaði heldur betur að vera
duglegur í gærmorgun og vakna eldsnemma því ég þurfti að taka
strætó í vinnuna J stillti vekjarann í símanum á 6:30 alveg nógu
tímanlega til að ná fyrsta vagni. En þar sem ég er maður sem
finnst gott að snooze-a ákvað ég að snooze-a alveg til klukkan
sjö, sá þá fram á það að ég hefði alveg tíu mínútur til að klæða
mig, bursta tennur og gefa kisunum að borða og koma mér niðurá
stoppistöð J. Eftir átta mínútur var ég búinn að öllu
heima sem ég ætlaði að gera, greip I-podinn minn og rauk út.
Hljóp eins og fætur toguðu niðurá stoppistöð (var næstum búinn
að hlaupa gamla konu niður í látunum í mér.) Kom á stoppistöðina
klukkan 7:10 ( sem er tíminn sem strætó á að vera þarna.)
hugsaði ég þarna “árans ég er örugglega nýbúinn að missa af
honum, jæja skítt með það ég tek bara næsta vagn, ég hef minn
I-pod til að stytta mér stundir ALLRIGHT” Nei nei klukkan 7:18
kemur ekki vagninn keyrandi! ÁTTA mínútum of seint!! Hvernig er
það eiginlega hægt??
Ég fer inn í vagninn og set mínar 280kr
í baukinn ekki vitandi það að bílstjórinn á þessari límmósíu fór
annað hvort öfugu megin frammúr um morguninn eða þá að hann væri
bara snarbilaður!!! Það hefði snjóað smá um nóttina og var hálka
úti, komum við keyrandi að smá krappri beygju eeen í staðinn fyrir
að hægja á sér gaf þessi maniac allt í botn sem endaði með því að
strætóinn var í rassaköstum út um alla götu. Asísk kona sem sat
tveimur sætaröðum fyrir framan mig eyddi næstu þremur mínútum í að
signa sig greinilega dauðhrædd um líf sitt í þessari bílferð
dauðans.
Verð vitni af einhverju því mesta
rusli sem hefur verið sýnt í sjónvarpi. Lá í sakleysi mínu upp í
sofa á miðvikudagskvöldið og var að flakka á milli svöðva þegar ég
dett inní raunveruleikaþáttinn hennar Britney Spears. Þarna hugsaði
ég hmmm…. kannski er komin þarna einhver önnur snilld eins og
þátturinn hennar Jessicu Simpson. Eeeen neinei þvílíkt rusl!! Eyddi
þarna hálftíma af lífi mínu sem ég fæ aldrei aftur.
L
Ekki tók nú neitt betra við þegar
þessi blessaði þáttur var búinn því þá byrjaði Entertainment
Tonight, alltaf þegar ég skipti á Sirkus og þessi þáttur er í gangi
þá er verið að tala um dauða Önnu Nicole Smith!! Hvað er eiginlega
hægt að kjamsa lengi á þessum dauða hennar?? Tja maður spyr
sig?

Jæja nenni ekki að nöldra neitt meira,
þarf víst að vinna smá 
Konni kveður syngjandi glaður í
strætó!